Framkvæmdastjóri Mannauðs & Menningar
Leiðtogahlutverk í alþjóðlegu þjónustu‑ og rekstrarumhverfi
Við leitum að kraftmiklum Framkvæmdastjóra Mannauðs & Menningar til að ganga til liðs við eitt fremsta alþjóðlega þjónustufyrirtæki landsins. Fyrirtæki sem þjónar breiðum hópi viðskiptavina og byggir á sterkri vinnustaðamenningu.
Þetta er einstakt tækifæri fyrir öflugan og framsýnan leiðtoga sem brennur fyrir því að byggja upp jákvæða menningu, efla teymi og skapa vinnuumhverfi þar sem fólki líður vel og skilar árangri.
Um starfið
Framkvæmdastjóri Mannauðs & Menningar, gegnir lykilhlutverki í áframhaldandi vexti og umbreytingu fyrirtækisins. Í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra og stjórnendateymi munt starfið fela í sér að byggja upp heildstæða mannauðs og menningar sýn, í takt við ríka þjónustumenningu og gildi fyrirtækisins, traust, ábyrgð, samvinnu og leiðandi þjónustu.
Hlutverk og áhrif
Sem Framkvæmdastjóri Mannauðs & menningar munt þú:
- Styrkja fjölbreytta vinnustaðamenningu
- Þróa leiðtogafærni og styðja stjórnendur í daglegum áskorunum og stefnumótun
- Bæta upplifun starfsfólks, frá ráðningu, frammistöðu og starfsþróunar
- Leiða breytinga‑ og umbótaverkefni í takt við alþjóðlega stefnu
- Stuðla að skýrri samskiptamenningu og ábyrgri stjórnsýslu
- Búa til umhverfi þar sem fólki líður vel og hefur skýran tilgang
Við leitum að einstaklingi sem býr yfir sterkri tilfinningagreind og faglegri nálgun á menn og málefni. Einstaklingur sem tengir fólk, byggir markvisst upp traust og hefur jákvæð áhrif á fyrirtækjamenningu og árangur.
Trúnaður og næstu skref
Ef þú ert reyndur mannauðs eða menningar leiðtogi sem vilt hafa áhrif, styðja vöxt og byggja upp vinnustað þar sem fólk hefur raunverulegt rými til að blómstra. Þá hlökkum við til að hitta þig. Fyllsta trúnaðar er gætt í öllum samskiptum.
ella@valhalla.is